Aðgerðir gegn peningaþvætti (AML/KYC)

kynntu þér áreiðanleika kannanir

Taktikal Drop & Sign user interface

Lausn Taktikal felur í sér áreiðanleikakönnun með auðkenningu á einstaklingum og forsvarsmönnum fyrirtækja ásamt spurningalistum um uppruna fjármagns og tilgang viðskipta hannaðir samkvæmt kröfum eftirlitsaðila.

Ferlið er skjalað og rafrænt undirrituð skjöl sendast sjálfkrafa í tölvupósti eða í skjalakerfi að undirritun lokinni. Viðskiptavinir sanna á sér deili með því að undirrita með fullgildri undirskrift með rafrænum skilríkjum, eða með Advanced undirskrift sem byggir á skönnun skilríkja.

Lausnin býður einnig upp á sjálfvirka uppflettingu á stjórnmálalegum tengslum, þvingunaraðgerðum og neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun ásamt gildandi skráningu í fyrirtækjaskrá.

Að lokum eru undirrituð gögn tímastimpluð með vottuðum tímaþjóni, innsigluð á öruggan hátt og send sjálfvirkt í skjalakerfið þitt til varðveislu. Einnig er hægt að birta gögnin í mæliborði áhættuvöktunar fyrir aukna yfirsýn.

HENTAR vel fyrir

Áreiðanleikakönnun einstaklinga
Áreiðanleikakönnun lögaðila
Skráningu raunverulegra eigenda
Innlenda aðila
Erlenda aðila
Uppflettingu á stjórnmálalegum tengslum

hvernig virka áreiðanleika kannanir?

View faq
1. Áreiðanleikakönnun hönnuð
View faq
2. Viðskiptavinur opnar áreiðanleikakönnun
View faq
3. Viðskiptavinur fyllir út áreiðanleikakönnun rafrænt
View faq
4. Sjálfvirkar aðgerðir framkvæmdar
View faq
5. Fáðu fullkomna yfirsýn
View faq
6. Gögn afhent

Byrjaðu með tilbúnum AML sniðmátum

Taktikal Drop & Sign user interface

Komdu þér fljótt í gang með tilbúnum sniðmátum í SmartFlows lausninni okkar með stöðluðum spurningalistum hönnuðum samkvæmt kröfum eftirlitsaðila bæði fyrir hefðbundnar og auknar áreiðanleikakannanir.

Viltu bæta skrefi við sniðmátið? Smelltu einfaldlega á plús hnappinn og bættu inn því sem þér finnst vanta. Öll skref er hægt að aðlaga fullkomlega að þínum þörfum.

Bættu við þeim gagnatengingum sem henta þinni starfsemi, s.s. gildandi skráningu fyrirtækjaskrár.

Þegar áreiðanleikakönnun hefur verið svarað er hægt að kalla sjálfvirkt í gagnagrunna um stjórnmálaleg tengsl og þvingunaraðgerðir ásamt því að fá samanburðarskýrslu frá hlutafélagaskrá um stjórnendur, stjórnarmenn, prókúruhafa og raunverulega eigendur.

Tilbúnar gagnatengingar

Samaburðarskýrsla frá hlutafélagaskrá - Sjá sýnishorn
Stjórnmálaleg tengsl, þvingunaraðgerðir og neikvæð fjölmiðlaumfjöllun - Sjá sýnishorn
Uppfletting í fyrirtækjaskrá (kennitala, nafn og heimilisfang)
Gildandi skráning fyrirtækjaskrár

Innbyggt KYC

Taktikal Drop & Sign user interface

Viðurkennd persónuskilríki eru skilgreind í lögunum sem gild persónuskilríki sem gefin eru út af stjórnvöldum eða eru viðurkennd af stjórnvöldum. Til gildra persónuskilríkja teljast m.a. vegabréf, ökuskírteini og nafnskírteini gefin út af Þjóðskrá Íslands eða samsvarandi erlendum stjórnvöldum og rafræn skilríki.

Fullgildar undirskriftir nýta íslensk rafræn skilríki sem innihalda fullgild rafræn vottorð sem varðveitt eru á fullgildum undirskriftarbúnaði frá Auðkenni.

Með Advanced undirritun er skilríki s.s. vegabréf eða ökuskírteini nýtt til að auðkenna notandann í stað rafrænna skilríkja. Advanced undirritanir styðja nú yfir 11.000 tegundir skilríkja gefin út af stjórnvöldum í yfir 230 löndum.

Fullgildar undirskriftir virka vel fyrir

Einstaklinga með íslensk rafræn skilríki
Forsvarsmenn lögaðila sem hafa íslensk rafræn skilríki
Raunverulega eigendur lögaðila sem hafa íslensk rafræn skilríki

Advanced undiskriftir Virka vel fyrir

Erlenda einstaklinga
Erlenda raunverulega eigendur
Einstaklinga sem hafa ekki íslensk rafræn skilríki

kynntu þér KYC hjá Taktikal

Taktikal Drop & Sign user interface

Taktikal býður upp á tvær tegundir undirskrifta með innbyggða auðkenningu (KYC), Fullgildar undirskriftir og Advanced undirskriftir.

Fullgildar undirskriftir nýta íslensk rafræn skilríki sem innihalda fullgild rafræn vottorð sem varðveitt eru á fullgildum undirskriftarbúnaði frá Auðkenni.

Með Advanced undirritun er skilríki s.s. vegabréf eða ökuskírteini nýtt til að auðkenna notandann í stað rafrænna skilríkja. Advanced undirritanir styðja nú yfir 11.000 tegundir skilríkja gefin út af stjórnvöldum í yfir 230 löndum.

Fullgildar undirskriftir virka vel fyrir

Einstaklinga með íslensk rafræn skilríki
Forsvarsmenn lögaðila sem hafa íslensk rafræn skilríki
Raunverulega eigendur lögaðila sem hafa íslensk rafræn skilríki

Advanced undiskriftir Virka vel fyrir

Erlenda einstaklinga
Erlenda raunverulega eigendur
Einstaklinga sem hafa ekki íslensk rafræn skilríki

hvernig virka áreiðanleika kannanir?

View faq
1. Áreiðanleikakönnun send
View faq
2. Áreiðanleikakönnun svarað.
View faq
3. KYC með Advanced undirskrift
View faq
4. KYC með Fullgildri undirskrift
View faq
5. Skjalavistun

Fullkomin yfirsýn

Taktikal Drop & Sign user interface

Í færsluskrá má fylgjast með gangi auðkenningar - og undirritunarferilsins og senda áminningar um að ljúka undirritun.

Hverju Advanced undirrituðu skjali fylgir sönnunarskjal með:

Týpu og númeri skilríkis sem var notað til auðkenningar
Tímasetningu auðkenningar og undirritunar
Niðurstöðu sannprófunar skilríkja

Sönnunarskjalið er tengt við undirritaða skjalið með einkvæmu auðkenni og innsiglað til að tryggja heilleika gagnanna.

Einnig fylgja með ljósmyndirnar sem teknar voru í ferlinu, af einstaklingnum og skilríki viðkomandi.

Við kynnum áhættuvöktun

Taktikal Drop & Sign user interface

Áhættuvöktun veitir þér fullkomna yfirsýn yfir áreiðanleikakannanir viðskiptamanna. Mælaborð sýnir yfirlit yfir útsendar áreiðanleikakannanir og áhættuflokkun þeirra.

Sparaðu starfsfólki tíma og vinnu með sjálfvirkri gagnasöfnun og samanburði á upplýsingum úr áreiðanleikakönnun og opinberum skráningum. Niðurstöður úr uppflettingum á stjórnmálalegum tengslum og þvingunaraðgerðum (PEP & Sanctions) eru flaggaðar sérstaklega í mælaborðinu til að vekja athygli.

HENTAR vel fyrir

Einstaklinga
Lögaðila
Raunverulega eigendur
Áhættuflokkun
PEP & Sanctions uppflettingar
Áminningar um endurmat

HVernig virkar áhættuvöktun?

View faq
1. Áreiðanleikakönnun svarað
View faq
2. Gagnayfirferð
View faq
3. Yfirferð á PEP
View faq
4. Niðurstaða skráð
View faq
5. Endurmat

Aðlagað að þínu áhættumati

Taktikal Drop & Sign user interface

Áhættuvöktun aðlagar sig að áhættumati þíns fyrirtækis. Stilltu af fjölda og heiti áhættuflokka og skráðu tíðni endurmats hvers flokks. Áhættuvöktun sér um að láta þig vita þegar komið er að endurmati viðskiptamanns og þú getur sent út nýja áreiðanleikakönnun með einum smelli.

Þú getur hlaðið upp lista af núverandi viðskiptamönnum inn í áhættuvöktun eða byrjað frá grunni.

Allar ákvarðanir eru vistaðar sjálfkrafa með nafni og nákvæmri tímasetningu til að tryggja rekjanleika.

Hægt er að tengja áhættuvöktun við önnur kerfi með vefþjónustum til að passa að viðskiptamenn geti ekki stundað viðskipti fyrr en þeir hafa farið í gegnum áhættumat hjá starfsmanni.

Stjórnmálaleg tengsl og þvingunar aðgerðir

Stjórnmálaleg tengsl og þvingunar aðgerðir

PEP stendur fyrir Politically Exposed Person. PEP-listar innihalda upplýsingar um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Ástæðan fyrir því að tengslin eru könnuð sérstaklega er sú að aðilar með slík tengsl eru taldir útsettari fyrir spillingu og mútuþægni en aðrir. Það ríkir sérstök skylda hjá eftirlitsskyldum aðilum að kanna hvort einstaklingar hafi stjórnmálaleg tengsl, gegni opinberri stöðu, séu dómarar eða sendiherrar eða hafi náin tengsl við slíka einstaklinga.

Taktikal býður upp á aðgang að alþjóðlegum PEP og Sanctions listum sem uppfærðir eru daglega. Lausnin er því öflug leið til að lágmarka áhættu með því að sannvotta svörun úr áreiðanleikakönnunum og uppfyllir kröfur AML5, FATF, UNCAC, JMLSG, UK/FCA og Wolfsberg Group um peningaþvætti.

HENTAR vel fyrir

Innlenda einstaklinga
Erlenda einstaklinga
Innlenda lögaðila
Erlenda lögaðila

Hvernig virkar PEP & Sanctions?

View faq
1. Áreiðanleikakönnun svarað
View faq
2. PEP & Sanctions uppfletting
View faq
3. Vistaðu skjölin á góðum stað

aukin fullvissa um áhættuþætti viðskiptavina

Taktikal Drop & Sign user interface

Vertu örugg/ur um hvort viðskiptamenn þínir séu með stjórnmálaleg tengsl eða á þvingunarlistum strax í upphafi viðskiptasambands með PEP & Sanctions uppflettingu.

PEP & Sanctions grunnarnir innihalda uppplýsingar bæði um einstaklinga og lögaðila og upplýsa um tengda aðila, tengd fyrirtæki, staðsetningar, önnur nöfn sem viðkomandi notar og neikvæða fjölmiðlaumfjöllun.

Þegar viðskiptamanni er flett upp færðu afhenta skýrslu með öllum niðurstöðum með hlekkjum á heimildirnar sem stuðst var við. Ef viðskiptamaðurinn fannst ekki í gagnagrunnunum færðu skýrslu sem staðfestir það.

MEðal þvingunarlista Sem grunnarnir sækja upplýsingar í

United Nations Sanctions (UN)
US Consolidated Sanctions
OFAC – Specially Designated Nationals (SDN)
EU Financial Sanctions
UK Financial Sanctions (HMT)
Australian Sanctions
Switzerland Sanction List – SECO
INTERPOL Wanted List
Consolidated Canadian Autonomous Sanctions List
Office of the Superintendent of Financial Institutions (Canada)
Bureau of Industry and Security (US)
Department of State, AECA Debarred List (US)
Department of State, Nonproliferation Sanctions (US)
Áreiðanleikakannarnir í  SmartFlows

Áreiðanleikakannanir nýta SmartFlows sem er notendavænn ritill í umhverfi sem þarfnast ekki kóða. Með SmartFlows geta allir útbúið verkferla sem samræmist þeirra kröfum og reglufylgni á nokkrum mínútum.

Segðu bless við handvirka vinnslu

Með SmartFlows getur þú gert KYC og KYB ferlið sjálfvirkt án tímafrekra innleiðinga. Hægt að afla gagna frá Þjóðskrá, Fyrirtækjaskrá, Keldunni og gagnagrunnum um stjórnmálaleg tengsl og þvingunaraðgerðir, sem hluti af ferlinu. Sparaðu starfsfólkinu tíma í gagnasöfnun með SmartFlows.

Öflugt mælaborð

Mælaborð áhættuvöktunar sýnir þær upplýsingar sem berast í SmartFlows, bæði svör einstaklinga og sjálfvirkar skýrslur sem hafa verið tengdar við SmartFlows flæðið. Þegar komið er að endurmati er einfalt að senda af stað áreiðanleikakönnun beint úr áhættuvöktun.

Previous Slide
Next Slide
Smartflow graphic.

Auðveld og þægileg samþætting

Rest API vefþjónustan okkar er öflug leið til að byggja nýjar lausnir í þínu eigin viðmóti og samþætta við þær lausnir sem eru þegar í notkun.

Hægt er að senda skjöl af stað í undirritun beint úr eigin kerfum og eftir undirritun er hægt að fá skjölin og tengd lýsigögn sjálfkrafa til baka í skjalakerfið.


const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

Þetta hafa viðskiptavinir okkar að segja

„Starfsfólk Orkusölunnar hefur átt mjög auðvelt með að tileinka sér lausnir Taktikal sem eru orðnar lykilþáttur í starfsemi félagsins, bæði gagnvart viðskiptavinum en einnig í innri starfsemi þess.“
Erling Ormar Vignisson
Þróunarstjóri stafrænna lausna, Orkusalan
„Taktikal gerir okkur kleift að framkvæma áreiðanleikakannanir á okkar viðskiptavinum með rafrænum hætti. Ferlið er einfalt og fljótvirkt og hefur gefist afar vel. Bæði við og viðskiptavinir okkar hafa verið mjög ánægðir með þjónustuna.“
Daði Kristjánsson
Framkvæmdastjóri, Viska Digital Assets
„Undirritunarlausnir Taktikal hafa stytt afgreiðslutíma félagsins umtalsvert. Í sumum tilfellum frá tveimur dögum niður í þrjár mínútur! Breytingin hefur einnig aukið skilvirkni hjá okkar starfsfólki.“
Sverrir Scheving Thorsteinsson
Tæknistjóri, Vörður
„Innleiðingarferlið tók aðeins 1-2 daga og gekk framar vonum. Fyrir viðskiptavini okkar þýða þessar breytingar betri þjónustu og hraðari afgreiðslu auk þess sem uppfært rafrænt ferli auðveldar verulega vinnuna hjá starfsfólki.“
Fannar Ásgrímsson
Stefnumótun og viðskiptaþróun, Sjóvá
„Okkar mat er að lausnin hafi stutt mjög við mikla fjölgun félagsmanna sl. 12 mánuði, en yfir 95% félagsmanna sem gengið hafa í félagið sl. 12 mánuði hafa undirritað inngöngubeiðni rafrænt.“
Gunnar Páll Pálsson
Formaður, Félag lykilmanna
Previous testimonial
Next testimonial