Ýmis konar leiðir til að undirrita rafrænt

A woman walking and Taktikal logo.

Kynntu þér Fullgildar undirskriftir

Taktikal Drop & Sign user interface

Fullgildar undirskriftir (QES) eru útfærðar samkvæmt tæknilegum kröfum um fullgildar undirritanir og nota undirritunarþjónustu Auðkennis sem er á traustlista Evrópusambandsins fyrir undirskriftir. Fullgildar undirskriftir eru jafngildar handrituðum undirskriftum samkvæmt lögum nr. 55/2019 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti sem tóku gildi 1. janúar 2020.

HENTAR vel fyrir

Samninga
Umsóknir
Umboð
Einstaklinga með íslensk rafræn skilríki í síma
Einstaklinga með Auðkennis appið

HVernig virka Fullgildar undirskriftir?

1. Skjal sent í undirritun

Notandi fær tölvupóst með hlekk á skjal til undirritunar og hefur undirskriftarferlið.

2. Skjal undirritað með rafrænum skilríkjum

Undirritandinn undirritar skjalið með fullgildum rafrænum skilríkjum á símanum sínum eða í Auðkennis appinu.

3. Skjal afhent

Undirritað skjalið er afhent til sendandans með valmöguleika á að senda það beint í skjalakerfi og til undirritandans.

Uppfyllir strangar öryggiskröfur

Taktikal Drop & Sign user interface

Með fullgildum undirskriftum eru uppfylltar strangar öryggiskröfur um öruggan undirskriftarbúnað (SSCD - Secure Signature Creation Device) við útfærslu undirskriftar ásamt auðkenningu sem byggir á fullgildum rafrænum skilríkjum í samræmi við kröfur eIDAS.

Vottaður tímastimpill tryggir að undirritunartíminn er staðfestur af vottuðum tímaþjóni (Qualified TSA) og skjalið er hæft til langtímavarðveislu.

Að lokum er skjalið innsiglað til að tryggja að ekki er hægt að eiga við skjalið eftir undirritun.

kynntu þér advanced undirskriftir

Taktikal Drop & Sign user interface

Sterk auðkenning er grundvöllurinn að trausti í undirskriftum og samningum. Advanced undirskriftir bjóða upp á sterka auðkenningu undirritenda. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir samninga með hátt áhættustig eða verulegar fjárhæðir.

Með advanced undirritun er skilríki s.s. vegabréf eða ökuskírteini nýtt til að auðkenna notandann í stað rafrænna skilríkja. Advanced undirritanir styðja nú yfir 11.000 tegundir skilríkja gefin út af stjórnvöldum í yfir 230 löndum.

hentar vel fyrir

Aðila sem eru ekki með íslensk rafræn skilríki
Erlenda aðila
Sanna deili á viðskiptamönnum
Áreiðanleikakannanir
Samningar
Umboð

hvernig virka advanced undirskriftir?

View faq
1. Skjal sent til undirritunar
View faq
2. Mynd af skilríkjum
View faq
3. Sjálfsmynd tekin
View faq
4. Skjal undirritað
View faq
5. Skjal afhent

Undirritun með innbyggðri auðkenningu

Taktikal Drop & Sign user interface

Í færsluskrá má fylgjast með gangi auðkenningar - og undirritunarferilsins og senda áminningar um að ljúka undirritun.

Upplýsingar í sönnunarskjali:

Týpa og númer skilríkis sem var notað til auðkenningar
Tímasetning auðkenningar og undirritunar
Niðurstöður sannprófunar skilríkja

Sönnunarskjalið er tengt við undirritaða skjalið með einkvæmu auðkenni og innsiglað til að tryggja heilleika gagnanna.

Einnig fylgja með ljósmyndirnar sem teknar voru í ferlinu, af einstaklingnum og skilríki viðkomandi.

kynntu þér standard undirskriftir

Taktikal Drop & Sign user interface

Standard undirskriftir gera það mögulegt að safna lagalega gildum undirskriftum frá einstaklingum sem eru ekki með rafræn skilríki á einfaldan hátt.

Standard undirskriftir nýta tölvupóst og símanúmer til að auðkenna undirritandann sem hentar einkar vel fyrir erlenda undirritendur.

Helstu kostir eru að ekki þarf lengur að vera með tvö kerfi til að senda á íslenska og erlenda undirritendur.

HENTAR vel fyrir

Innlenda aðila
Erlenda aðila
Þegar ekki er gerð krafa um fullgildar undirskriftir
Trúnaðaryfirlýsingar
Ráðningarsamningar
Almennir viðskiptasamningar

Hvernig virka standard undirskriftir?

View faq
1. Skjal sent til undirritunar
View faq
2. Skjal undirritað
View faq
3. Skjal afhent

Helstu eiginleikar standard undirskrifta

Taktikal Drop & Sign user interface

Standard undirskriftir nýta tölvupóst og símanúmer til að staðfesta auðkenni undirritandans. Vottaður tímastimpill tryggir að undirritunartíminn er staðfestur af vottuðum tímaþjóni (Qualified TSA) og skjalið er hæft til langtímavarðveislu.

Að lokum er skjalið innsiglað til að tryggja að ekki er hægt að eiga við skjalið eftir undirritun.

Í færsluskrá má fylgjast með gangi auðkenningar - og undirritunarferilsins og senda áminningar um að ljúka undirritun. Hverri undirskrift fylgir sönnunarskjal sem er tengt við undirritaða skjalið með einkvæmu auðkenni og innsiglað til að tryggja heilleika gagnanna.

undirritaðu með einum smelli

Taktikal Drop & Sign user interface

Click to sign undirskriftir gera það mögulegt að safna undirskriftum frá einstaklingum sem eru ekki með rafræn skilríki á fljótlegan og einfaldan hátt. Click to sign undirskriftir eru lagalega gildar í flestum löndum.

Með Click to sign þarf einungis netfang til að auðkenna undirritandann sem hentar einkar vel fyrir erlenda undirritendur og þegar ekki er gerð krafa um sterka auðkenningu.

HENTAR vel fyrir

Innlenda aðila
Alþjóðlega aðila
Umboð
Trúnaðaryfirlýsingar
Umsóknir
Almenna viðskiptasamninga

HVernig virka Fullgildar undirskriftir?

View faq
1. Skjal sent til undirritunar
View faq
2. Skjal undirritað
View faq
3. Skjal afhent

helstu eiginleikar click to sign undirritunar

Taktikal Drop & Sign user interface

Click to sign undirskriftir nýta einungis tölvupóst til að staðfesta auðkenni undirritandans, svo ekki er þörf á að skrá símanúmer undirritandans.

Vottaður tímastimpill tryggir að undirritunartíminn er staðfestur af vottuðum tímaþjóni (Qualified TSA) og skjalið er hæft til langtímavarðveislu.

Að lokum er skjalið innsiglað til að tryggja að ekki er hægt að eiga við það eftir undirritun.

Í færsluskrá má fylgjast með gangi undirritunarferilsins og senda áminningar um að ljúka undirritun. Hverri undirskrift fylgir sönnunarskjal sem er tengt við undirritaða skjalið með einkvæmu auðkenni og innsiglað til að tryggja heilleika gagnanna.

Auðveld og þægileg samþætting

Rest API vefþjónustan okkar er öflug leið til að byggja nýjar lausnir í þínu eigin viðmóti og samþætta við þær lausnir sem eru þegar í notkun.

Hægt er að senda skjöl af stað í undirritun beint úr eigin kerfum og eftir undirritun er hægt að fá skjölin og tengd lýsigögn sjálfkrafa til baka í skjalakerfið.


const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

const taktikal = require("@taktikal/js-sdk");
const taktikal = taktikal({
	apiKey: "API_KEY",
	parentId: "veriff-root",
	onSession: function (err, response) {},
});
Taktikal.mount();

Þetta hafa viðskiptavinir okkar að segja

„Starfsfólk Orkusölunnar hefur átt mjög auðvelt með að tileinka sér lausnir Taktikal sem eru orðnar lykilþáttur í starfsemi félagsins, bæði gagnvart viðskiptavinum en einnig í innri starfsemi þess.“
Erling Ormar Vignisson
Þróunarstjóri stafrænna lausna, Orkusalan
„Taktikal gerir okkur kleift að framkvæma áreiðanleikakannanir á okkar viðskiptavinum með rafrænum hætti. Ferlið er einfalt og fljótvirkt og hefur gefist afar vel. Bæði við og viðskiptavinir okkar hafa verið mjög ánægðir með þjónustuna.“
Daði Kristjánsson
Framkvæmdastjóri, Viska Digital Assets
„Undirritunarlausnir Taktikal hafa stytt afgreiðslutíma félagsins umtalsvert. Í sumum tilfellum frá tveimur dögum niður í þrjár mínútur! Breytingin hefur einnig aukið skilvirkni hjá okkar starfsfólki.“
Sverrir Scheving Thorsteinsson
Tæknistjóri, Vörður
„Innleiðingarferlið tók aðeins 1-2 daga og gekk framar vonum. Fyrir viðskiptavini okkar þýða þessar breytingar betri þjónustu og hraðari afgreiðslu auk þess sem uppfært rafrænt ferli auðveldar verulega vinnuna hjá starfsfólki.“
Fannar Ásgrímsson
Stefnumótun og viðskiptaþróun, Sjóvá
„Okkar mat er að lausnin hafi stutt mjög við mikla fjölgun félagsmanna sl. 12 mánuði, en yfir 95% félagsmanna sem gengið hafa í félagið sl. 12 mánuði hafa undirritað inngöngubeiðni rafrænt.“
Gunnar Páll Pálsson
Formaður, Félag lykilmanna
Previous testimonial
Next testimonial