Brunnur Ventures fjárfestir í Taktikal fyrir 260 milljónir króna

Reykjavík 12. janúar 2022 – Taktikal hefur tryggt sér 260 milljóna króna fjármögnun frá Brunni vaxtarsjóði II sem stýrt er af Brunni Ventures. Fjármagnið verður nýtt til að efla vöruþróun og sækja á erlenda markaði.

Taktikal þróar í dag fjölbreyttar stafrænar lausnir og ferla sem auka traust á netinu og flýta fyrir viðskiptum með því að auka sjálfvirkni í stafrænum lausnum alls staðar þar sem skjöl og undirskriftir koma við sögu.

Taktikal var stofnað snemma árs 2017 af Vali Þór Gunnarssyni, Bjarka Heiðari Ingasyni og Jóni Björgvini Stefánssyni sem höfðu áður starfað sem sérfræðingar í fjármála- og hugbúnaðargeiranum. Starfsmenn Taktikal eru í dag átta talsins og er áætlað að fjöldi starfsfólks félagsins tvöfaldist á næstu mánuðum en framundan er að þróa nýja tegund af skýjalausn er gerir Taktikal fært að bjóða lausnir sínar á alþjóðamarkaði.

Viðskiptavinir Taktikal í dag eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins ásamt ríki og sveitarfélögum er reiða sig á lausnir Taktikal fyrir rafræna upplýsingasöfnun, skjalagerð, innsiglanir og undirskriftir skjala t.d. við móttöku nýrra viðskiptavina (e. onboarding).

Rafræn staðfesting á skjölum með lausnum Taktikal eykur þjónustustig fyrirtækja og sparar þeim dýrmætan tíma og vinnu við að safna undirskriftum á pappír. Áður fyrr gat slík vinna tekið nokkra daga en tekur nú einungis nokkrar mínútur.

Lausn Taktikal er notuð í margþættum tilgangi svo sem við gerð ráðningasamninga, fundargerðir hjá stjórnum, trúnaðaryfirlýsingar, eða í viðskiptum með bíla og fasteignir.

„Þörfin hefur aldrei verið meiri fyrir að byggja upp traust á netinu. Taktikal leggur áherslu á að aðstoða sína viðskiptavini í stafrænni vegferð þar sem traust og öryggi er í hávegum haft. Þessi fjármögnun gerir okkur kleift að efla vöruþróun og sækja út fyrir landsteinana“, segir Valur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Taktikal.

    „Taktikal hefur á að skipa öflugu teymi sem hefur smíðað heimsklassa hugbúnaðarlausn. Okkur hjá Brunni Ventures þykir spennandi að leggja Taktikal lið og fylgja fyrirtækinu í sókn þess á erlenda markaði“, segir Kjartan Örn Ólafsson, fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures.