Mörg skjöl í einu undirritunarferli og hópar fyrir undirskriftir 🚀

Teymið okkar hefur unnið hörðum höndum að nýjungum er létta viðskiptavinum okkar lífið. Við erum stolt að segja ykkur frá því að nú geta viðskiptavinir Taktikal sent mörg skjöl í einu undirritunarferli – án þess að senda marga tölvupósta eða SMS. Uppfærslan er þegar aðgengileg öllum viðskiptavinum Taktikal með Pro áskrift.

Mörg skjöl – Eitt undirritunarferli ✍️

Mörg skjöl í undirritun í einu

Dæmi um mörg skjöl í einu undirritunarferli

Hópar fyrir undirskriftir

Sendirðu oft á sama hópinn? Nú er hægt að búa til hópa fyrir þá einstaklinga sem þú sendir oftast á án þess  að velja einn í einu. Þetta nýtist vel í t.d. stjórnum fyrirtækja og fyrir hópa sem oft þurfa að móttaka skjöl til undirritunar.

Hópar fyrir undirskriftir

Dæmi um hóp viðtakenda

Þjónustuver Taktikal Hafir þú spurningar eða vanti þig aðstoð má hafa samband við þjónustuver Taktikal  á netfangið hjalp(hjá)taktikal.is en einnig bendum við á https://taktikal.is/help þar sem má finna gagnlegar upplýsingar og senda inn beiðnir á þjónustuver Taktikal.