Samband íslenskra sparisjóða velja SmartFlows frá Taktikal

Sparisjóðirnir hafa valið SmartFlow lausn frá Taktikal til að einfalda og umbreyta verkferlum hjá sér.

“Við erum á vegferð við að stafvæða öll ferli hjá okkur til þess að bæta þjónustu við okkar viðskiptavini og einfalda innri ferla. Taktikal styður vel við þessa vegferð því lausnin þeirra er notendavæn jafnt fyrir viðskiptavini sem og starfsfólk”, segir Guðmundur Tómas Axelsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða - SÍSP.

Með SmartFlows frá Taktikal geta Sparisjóðirnir sett upp og hannað stafræna ferla sem koma í stað eldri umsókna og eyðublaða. Þetta er bylting frá því sem áður var þegar þurfti að stofna til flókinna hugbúnaðarverkefna og leita aðstoðar tæknimanna við uppsetningu og viðhaldi á slíku, en slíkt getur verið dýrt og tímafrekt.

Þetta þýðir að allir umsóknarferlar Sparisjóðanna munu verða rafrænir, allt frá umsókn um debetkort yfir í opnun reikningsviðskipta fyrir nýja viðskiptavini. Slíkt er þáttur í því að tryggja og einfalda aðgengi að mikilvægri þjónustu.

“Taktikal er í miklum vexti og nýjasta varan okkar er SmartFlow. Með henni fá viðskiptavinir öflugt verkferlatól til að einfalda umsóknar- og samningsferla. Með innbyggðu sniðmátunum okkar geta notendur sett upp verkferla á nokkrum mínútum. Við erum í skýjunum með að Sparisjóðirnir hafi valið Taktikal til að styðja við sína viðskiptavini og við hlökkum til samstarfsins”, er haft eftir Vali Þór Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Taktikal.

Um Taktikal
Taktikal hjálpar fyrirtækjum að endurhanna og sjálfvirknivæða ferla fyrir rafrænar undirskriftir er skila sér í hraðari afgreiðslu, hagkvæmni í umsýslu skjala, minni rekstraráhættu og betri upplifun viðskiptavina. Taktikal hefur í þrjú ár verið valið sú lausn í rafrænum undirskriftum með hæstu ánægju viðskiptavina samkvæmt stjórnendakönnun Maskínu.

Um Sparisjóðina
Sparisjóðirnir leggja áherslu á að veita viðskiptavinum sínum persónulega og heildstæða fjármálaþjónustu. Sparisjóðirnir eru fjórir talsins: Sparisjóður Austurlands, Sparisjóður Höfðhverfinga, Sparisjóður Suður-Þingeyinga og Sparisjóður Strandamanna.

Viltu vita meira um Smartflows? Þú getur prófað SmartFlows frítt í 30 daga